Reynslusögur
Ég byrjaði að fá hausverk af því að líta á skjái í október 2021, í desember fékk ég hausverk af því að horfa á bókstafi og seinna af því að horfa á mynstur og ljósmyndir. Í nóvember fór ég að fá verki í andlitið af því að heyra minnstu hljóð (Hyperacusis with pain) og fékk vöðvaverki í kroppinn. Ég gat mjög lítið verið í skólanum eftir áramótin, var hættur að geta farið út úr húsi og þurfti að flýja í bíl úr húsinu mínu þegar einhver hljóð bárust inn í húsið svo sem frá sláttuvél eða viðgerðum í nágrenninu. Læknarnir voru ekki búnir að finna neitt sem hjálpaði hið minnsta og þau lyf sem ég fékk gerðu bara illt verra. Ég hitti Jórunni í ágúst 2022 og eftir fyrsta tímann fór ég frá því að geta varla talað við neinn út af sársauka frá hljóðunum upp í að geta talað nánast stanslaust. Eftir annan tímann var ég byrjaður að geta lesið og heyrt allskonar tækjahljóð og var orðinn miklu skárri alls staðar. Eftir þriðja tímann gat ég horft heilan helling á skjái og skánaði enn meira að öllu leyti og mér hélt áfram að batna á hverjum degi. Það að ég hitti Jórunni hreinlega bjargaði lífinu mínu frá glötun. Ég mæli eindregið með P-DTR.
Svo fór ég til Jórunnar og hún byrjaði að pota í mig, eins og ég vil orða það ; ) Þegar ég lá á bekknum hjá henni í fyrsta tímanum fannst mér þetta pot hennar ansi tilgangslaust og munaði engu að ég færi í miðjum tíma. En viti menn eftir tímann var verkurinn nánast farinn og ég sem hafði verið haltur þegar ég kom til hennar gekk nánast eðlilega frá henni. Hún tók mig síðan þrisvar sinnum og ég var alheill. Fékk nokkrar æfingar og teygjur í heimanám og hef verið góður í síðan.”
og bætt úr öllum meinum
Ljósi Jórunn lýsir hér
Það líkist göldrum einum
Jórunn gerði Bowen á mér og notaði jafnframt ljósið. 10 mínutum eftir meðferðina hurfu verkirnir og ég svaf alla nóttina til morguns. Jórunn er næm og hefur góða nærveru og er mjög umhugað um sína sjúklinga.
Við mælum 100% með Bowen meðferðinni og Jórunn kann sitt fag. Við erum ævilega þakklát fyrir Jórunni og hennar meistara tækni í faginu.
Kæra Jórunn, takk fyrir aðstoðina
Kærar þakkir fyrir okkur 🙂 “
Langaði að senda þér sérstakar þakkir fyrir að taka við mér með svona stuttum fyrirvara um daginn. Þú bjargaðir mér alveg og ég er svo ánægð með þig og þína meðferðir. Þú ert alger snillingur. Bowen meðferðir hjá þér er það sem hefur virkað lang best á bakið á mér og skilað algerum kraftaverkum.
Það losnaði um í bakinu og gat ég aftur farið að sitja og hreyfa mig, er reyndar tognuð í bakinu vinstra megin, en það vinnst á lengri tíma, en allur stífleikinn í bakinu fór eins og dögg fyrir sólu.
Jórunn þetta sem þú gerir, þetta bowen verður til þess að þú munt aldrei losna við mig.
Er að koma úr stuttum hröðum göngutúr. Það hef ég ekki getað í 20 ár. Hreyfigeta axlanna hefur ekki verið eins góð og í dag í 10 ár. Þetta hefur gerst eftir 3 tíma í afslöppun hjá Jórunni. Samspil taugakerfis og líkama er lítið kannað. Enn er verið að kortleggja heilann eins og nóblelsverðaun í læknisfræði 2014 vitna um. Maður veit lítið um ósjálfráða taugakerfið og áhrif þess á líkamann. Jórunn er ein af þeim sem virðast skilja meira um þetta en stendur í bókum.
Bestu kveðjur,
Sæl Jórunn og takk fyrir síðast, ég kom til þín í Bowen meðferð í tvö skipti og það læknaði golfolnbogan hjá mér
takk kærlega.

Síðan kom ég aftur búin að vera slæm í mörg ár neðst í mjóbakinu eftir að hafa dottið á rassinn á flísalagt gólf var einnig búin að vera hjá sjúkraþ. var búin að sætta mig að ég yrði bara svona en ákvað að tala við þig og fór í 3 skipti. Stórmerki gerðist ég lagaðist. Ég er búin að segja mörgum frá þessum kraftaverkum sem þú gerðir mér. Ég þarf að fara að kíkja til þín aftur er svo stirð í kroppnum byrjaði að taka inn magnesíum samkv. leiðbeiningum þínum reyndar ekki nógu dugleg í sumar en nú er rútínan komin í gang. Daginn eftir bowen-meðferðina hjá Jórunni var ég komin með fullan kraft í hendina og gat kreppt hana á ný.
Wanted to provide some thoughts on my recent visit to you, your facility and Bowen therapy
Firstly, wanted to comment how calm and relaxing the environment was, really putting me at ease.
Your relaxed therapy, expertly and professionally provided, was very helpful in relieving some serious joint pain in my right ankle, and back, was the greatest of experiences, not only for the body, but for the soul.
Indeed I did see a marked difference in the pain, which was relieved for some time. Just amazing!!
Knowing I need to do at least 3 visits to take effect, I will look forward to coming back in the near future to your oasis of peace, tranquility, and relaxation
Einnig langar mig til að benda á að eitt skiptið kom drengurinn minn með mér í tíma þar sem hann var ekki í frístund þann daginn og hann talaði um það eftir tímann hversu gott þetta hefði verið og spurði: “Mamma hvernær ferðu að hitta konuna aftur og má ég koma með þetta var svo gott”
Ég hef mjög gaman að því að dansa en hef átt mjög erfitt með það í langann tíma og hefur það farið versnandi ,eftir tvö skipti í bowen hjá Jórunni fór ég á ball og dansaði í a.m.k. þrjá tíma nær stanslaust það var sama hvort ég tjúttaði, dansaði gömlu dansana eða línudansa ég fann ekkert til í fótunum og ekki einu sinni daginn eftir sem var mjög óvenjulegt. Mig hlakkar til að mæta í næsta tíma og ætla mér að vera reglulega hjá henni
Eftir tímann var hann frekar pirraður en hann hefur verið eins og ljós síðustu daga. Finnst eins og hann sé allt annað barn, ég hugsa bara getur það verið að 2 tímar í Bowen hafi geta haft þessi áhrif, finnst það svo ótrúlegt.
Hann er rólegri og jákvæðari, Morgnarnir eru allt aðrir, jákvæðari við að læra heima – ekki þessi mikli mótþrói, þráhyggjur og áráttur hafa minnkað alveg heilmikið. Einnig finnst mér félagsleg staðan hjá honum hafa breyst. Hljómar kannski fáránlega en ég sé það bara með því að horfa á hann að honum líður betur það er eitthvern vegin léttari yfir honum
Takk fyrir frábæra þjónustu.